Þurfti að bíða í einn og hálfan sólarhring

Aðfararnótt 9. september vaknaði ég með sárar hvalir í maga og kallaði til neyðarlækni. Hann ákvað að best væri að senda mig með sjúkrabíl á bráðavaktina. Þar beið ég frá kl 8 á sunnudagsmorgni og þar til kl. 6 á mánudagskvöldi þegar ég loks komst í uppskurð sem þá var orðin bráðaaðgerð.

Á þessum tíma talaði við mig fullt af læknum og öðru starfsfólki sem sífellt var að reyna að meta hversu alvarlegur magaverkurinn væri og hvort það væri ástæða til að fara í myndatöku. Það var talsvert atriði hjá þeim að vera ekki að senda fólk í myndatöku að óþörfu þó það lægi fyrir frá upphafi að ekki var auðvelt að skilgreina magaverkinn út frá venjulegum atriðum.

Nýtt og nýtt fólk kom að málinu, blóðprufurnar týndust og það uppgötvaðist ekki fyrr enn eftir marga tíma. Fólkið hafði greinilega allt of mikið að gera. Skurðlæknir ætlaði að tala við mig kl. 8 um morguninn en kom ekki fyrr en kl.15

Þegar ég var farin að gubba svörtu komst hreyfing á málin. Ég fór í myndatöku. Vandamálið sem var uppásnúin görn og sýking kom í ljós og ég var send með sjúkrabíl á landspítalann þar sem skurðaðgerð var gerð klukkutíma síðar eða kl. 7 á mánudagskvöldinu enda mátti víst ekki bíða lengur með þetta.

Ég er afar þakklát lækninum sem gerði aðgerðina og starfsfólkinu á landsspítalanum sem tók á móti mér. Þetta var allt frábært fagfólk, elskulegt og fært á sínu sviði.

Hins vegar hef ég verið hugsi yfir ástandinu á bráðavaktini. Fólkið þar náði alls ekki að sinna sjúklingunum þó svo að allir væru elskulegir og af vilja gerðir. Í mínu tilviki hefði getað farið illa.

Kannski þarf að hugsa hlutina upp á nýtt

 


mbl.is Álagið eiginlega ómannlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Mikið er gott að allt fór vel hjá þér Guðrún Anna að lokum en þessi atburður er lýsandi fyrir ástandið myndi ég segja...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 19.9.2012 kl. 06:51

2 Smámynd: Hjördís Vilhjálmsdóttir

Óheppin ertu að vera ekki Alþingismaður eða ráðherra ... ;)) Þá hefði ekki verið þessi bið...það er alveg víst.

En það er gott að allt fór vel hjá þér Anna Guðrún ;)

Hjördís Vilhjálmsdóttir, 19.9.2012 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband